Dimax Rapid

Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Díklófenak

Markaðsleyfishafi: Alvogen | Skráð: 1. júlí, 2021

Dimax Rapid er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Virka efni lyfsins, díklófenak, dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau stuðla m.a. að bólgumyndun. Dimax Rapid er notað við mígreni annars vegar og í bráðum bólgutilvikum hins vegar, t.d. verkjum og bólgum af ýmsum toga, eins og eftir slys.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
50-150 mg á dag í 2-3 skömmtum.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
30-60 mín.

Verkunartími:
8-12 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómurinn getur versnað þegar hætt er að taka lyfið. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Æskilegt er að fara reglulega í eftirlit til læknis og láta meta áhrif lyfsins á lifur, nýru, blóðhag og maga.


Aukaverkanir

Óþægindi frá meltingarvegi eru algengustu aukaverkanir lyfsins. Þau hverfa oftast eftir inntöku lyfsins í nokkra daga.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bjúgur, hár blóðþrýstingur          
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur        
Hægðatregða          
Höfuðverkur, svimi          
Kviðverkir, uppþemba, vindgangur          
Lystarleysi          
Ógleði, uppköst, niðurgangur, meltingartruflanir          
Suð fyrir eyrum          
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi        
Útbrot, kláði      
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Náttúrulyfið ginkgo getur aukið blæðingahættu. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni díklófenaks. Díklófenak getur dregið úr verkun blóðþrýstingslækkandi lyfja.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með blæðingartilhneigingu
  • þú sért með háan blóðþrýsting
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með maga- eða skeifugarnarsár
  • þú sért með magabólgu
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur. Ekki má taka lyfið á síðustu mánuðum meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 14 ára.

Eldra fólk:
Aukin hætta er á aukaverkunum. Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið getur skert viðbragðshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Getur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.